Framleiðsla á bóluefni og mótefnsermi ásamt sölu á hrossa- og kindablóði er mikilvægur hluti af starfsemi Keldna og þjónustu við bændur og heilbrigðisstofnanir.

Ný vefgátt fyrir pantanir á framleiðsluvörum Keldna

Keldur hafa tekið í notkun nýtt pöntunarkerfi fyrir framleiðsluvörur sínar.
Kerfið er aðgengilegt í gegnum vefgátt sem einfaldar pöntunarferlið og bætir þjónustu við viðskiptavini.
Til að nýta vefgáttina þarf að sækja um aðgang hjá Keldum með því að senda tölvupóst á postur@keldur.is og þegar https://matrix.rhi.hi.is/IEP/aðgangur hefur verið veittur er hægt að senda inn pantanir með öruggum og þægilegum hætti.

Innskráning í vefgátt.

Yfirlit yfir framleiðslu Keldna Yfirlit yfir framleiðslu Keldna

PANTANIR ERU AFGREIDDAR NÆSTA VIRKA DAG EFTIR AÐ ÞÆR BERAST.

Vörur eru sendar með flutningaþjónustu "EIMSKIP Flytjanda" nema að ANNAÐ sé tekið fram.
 

Ath. bóluefni og mótefnasermir er eingöngu afgreitt til þeirra sem hafa lyfsöluleyfi.

Allar pantanir á framleiðsluvörum Keldna s.s. bóluefni, agarskálar, blóð, tilraunadýr ofl. fara fram í gegnum vefgátt
Innskráning á vefgátt hér.
Til að sækja um aðgang að vefgáttinni skal hafa samband á tölvupóstfangið postur@keldur.is
Athugið pöntun á sýnatökubúnaði fer fram í gegnum syni@keldur.is 
 

Ath. Bóluefni og mótefnasermi eru eingöngu seld þeim sem hafa lyfsöluleyfi

  • Blandað bóluefni - gegn sjúkdómum í sauðfé af völdum Clostridium sýkla (lambablóðsótt, garnapest (flosnýrnaveiki) og bráðapest)
  • Lungnapestarbóluefni - gegn lungnapest í sauðfé af völdum Pasteurella, Mannheimia og Bibersteinia sýkla
  • Sermi gegn lambablóðsótt


Leiðbeiningar um notkun bóluefna og mótefnasermis:

Tilraunastöðin sér rannsóknarstofnunum í landinu fyrir hrossa- og kindablóði sem notað er í sýklaæti og ýmis rannsóknarstofupróf.

Sérlaganir – framleiddar eftir pöntun:

  • Blóðagar (með/án salts, með/án sýklalyfja), lágmarkspöntun 20 skálar
  • Þynningarvökvi fyrir hrútasæði
Share