Um Keldur
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er háskólastofnun sem tengist læknadeild Háskóla Íslands en hefur sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjárhag.
Starfsemin er mjög fjölþætt og aðferðum margra fræðigreina er beitt í grunn- og þjónusturannsóknum, þ.e. líffærameinafræði, örverufræði, ónæmisfræði, sníkjudýrafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði.
- Tilraunastöðin að Keldum tók til starfa haustið 1948
- Hlutverk hennar er tilgreint með lögum nr. 67 frá 1990, og lögum nr. 50 frá 1986 um rannsóknir á fisksjúkdómum
- Tilraunastöðin að Keldum er háskólastofnun, tengd læknadeild Háskóla Íslands
- Tilraunastöðin heyrir undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
- Keldur hafa sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjárhag
- Í stjórn Keldna sitja fulltrúar læknadeildar Háskóla Íslands, raunvísindadeildar, matvælaráðuneytis og starfsmanna
- Keldur eiga í miklu rannsóknasamstarfi við innlenda og erlenda aðila
- Rannsóknaverkefni eru fjármögnuð með innlendum og erlendum styrkjum