Áhættusýni - leiðbeiningar vegna sýnatöku

 

Hafa skal samband við Keldur ÁÐUR en áhættusýnin eru send

Símanúmerið er 585 5100 og tengiliður er Vilhjálmur Svansson (893 6777)
 

Um sýnatökuna, frágang sýnisins og sendingarinnar:

Varðandi gerð og fjölda sýna skal hafa samráð við viðkomandi sérgreinadýralækni og/eða dýralækna á Tilraunastöðinni.

Eftir sýnatöku skal ytrabyrði sýnaumbúða (s.s.blóðglös, stroksýnaglös, ílát undir líffæri) úðað með sótthreinsiefni  (s.s. Virkoni) eftir töku og þau kæld strax (frystið ekki).

Sýnum skal pakkað í hentugar umbúðir, t.d. frauðplastbakka eða kassa, sem síðan er pakkað inn í plastpoka og umslag og þannig frá þeim gengið að þau verði ekki fyrir hnjaski á leiðinni. Setjið kælikubb með sýnum.

Merkið sendinguna með eftirfarandi áletrun og fyllið út fylgiseðil með nauðsynlegustu upplýsingum og límið hann utan á kassann:

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum,
Keldnavegur 3, 112 Reykjavík, s. 585 5100
b.t. Vilhjálms Svanssonar (893 6777)
Nafn sendanda

 

Mikilvægt er að farið sé nákvæmlega eftir leiðbeiningum.

  1. Af almennum hreinlætisástæðum
  2. Af tillitssemi við flutningsaðila
  3. Til að hindra hugsanlega mengun / dreifingu á smitefni