Vöktun smitferja - sumar 2026

Í sumar stendur yfir áframhaldandi vöktun á mögulegum smitferjum (e. vectors) hér á landi, svo sem moskítóflugum, mítlum og lúsmýi. Í ljósi þess að moskítóflugur fundust hér á landi í fyrsta sinn síðastliðið haust er mikilvægt að fylgjast náið með þróun mála og meta hvort þeirra verði vart á ný og þá í hvaða mæli.

Vísindamenn á Keldum fylgjast með stöðunni í samvinnu við Náttúrufræðistofnun og Matvælastofnun.  Markmiðið er að efla yfirsýn yfir útbreiðslu tegunda og meta hvort þær geti borið smitsjúkdóma sem skipta máli fyrir dýr og menn. 

Mítlar

Almenningur og dýralæknar eru hvattir til að safna mítlum sem finnast á fólki eða dýrum.

Sýnum má skila á Náttúrufræðistofnun eða Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Upplýsingar sem mikilvægt er að fylgi mítlasýnum:

  • Dagsetning fundar
  • Fundarstaður
  • Hýsill (dýr/maður)
  • Hvar hýsill hefur haldið sig síðustu daga

Moskítóflugur

Almenningur er hvattur til að tilkynna ef grunur vaknar um moskítóflugur.

Tilkynningar um moskítóflugur skulu sendar á Náttúrufræðistofnun (natt[hjá]natt.is). Mikilvægt er að láta staðsetningu fundar fylgja með, sem og ljósmyndir ef kostur er.

Vinsamlegast athugið að sýnum er safnað til rannsókna og vöktunar. Ekki er unnið úr hverju sýni strax og ekki er veitt einstaklingsbundin niðurstaða í öllum tilvikum.

 

Share