Miðvikudaginn 2. september síðastliðinn heimsóttu Keldur fyrsta árs nemar í búvísindum, hestafræði og diplómanámi með áherslu á dýraheilbrigði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Um var að ræða rúmlega 30 áhugasama nemendur sem fengu kynningu á starfsemi Keldna frá deildarstjórunum Árna Kristmundssyni, Charlottu Oddsdóttur og Vilhjálmi Svanssyni. Höfðu nemendurnir dagana á undan ferðast um sveitir og heimsótt fólk sem starfar við búfjárrækt og tengdar greinar.
Þessi föngulegi hópur var vitanlega mjög velkominn á Keldur eins og hann lagði sig, en sérstaklega var ánægjulegt að í hópnum voru 19 nemendur sem hófu í haust diplómanám í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði. Keldur fagna tengslum við samstarfsfólk framtíðarinnar enda gegnir stofnunin mikilvægu hlutverki í menntun og endurmenntun fagfólks í dýraheilbrigðismálum. Fram að þessu hefur það einkum falist í að leiðbeina nemum í lokaverkefnum, starfsnámsdvölum og samstarfi í rannsóknarverkefnum. Framtíðin ber vonandi í skauti sér meiri og fjölbreyttari dvöl dýralæknanema og annarra nema í búfjárrækt að Keldum, þar sem óskin er að koma upp bættri aðstöðu til verklegrar og fræðilegrar kennslu.
Keldur óska þessu unga og upplitsdjarfa fólki alls hins besta í námi, leik og starfi.