Charlotta Oddsdóttir dýralæknir hefur tekið við starfi deildarstjóra bakteríu-, sníkjudýra- og meinafræðideildar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Charlotta tekur við deildarstjórastarfinu af Völu Friðriksdóttur frá og með 1. júlí 2023.

Charlotta lauk embættisprófi í dýralækningum frá Den Kongelige Veterinær- og Landbohøjskole í Kaupmannahöfn árið 2003. Hún útskrifaðist með doktorsgráðu í frjósemi hrossa frá Edinborgarháskóla árið 2008.

Charlotta hefur starfað sem dýralæknir við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum frá árinu 2018.