Keldur hafa tekið í notkun nýtt pöntunarkerfi fyrir framleiðsluvörur sínar.
Kerfið er aðgengilegt í gegnum vefgátt sem einfaldar pöntunarferlið og bætir þjónustu við viðskiptavini.
Til að nýta vefgáttina þarf að sækja um aðgang hjá Keldum og þegar aðgangur hefur verið veittur er hægt að senda inn pantanir með öruggum og þægilegum hætti.
Nánari upplýsingar um framleiðsluvörur Keldna, aðgang að vefgáttinni og pöntunarferlið má finna á síðunni Framleiðsla og sala Keldna.
Við hvetjum viðskiptavini sem hafa áhuga á að nýta sér nýja pöntunarkerfið til að kynna sér upplýsingarnar á vefnum og hafa samband við Keldur fyrir frekari upplýsingar og aðstoð ef þörf er á.