Jafnlaunavottun

 

Stefnuskjöl

Launa og jafnlaunastefna

Jafnréttisáætlun Keldna

 

Ábendingar

Með þessu eyðublaði getur starfsfólk Tilraunastöðvarinnar, eða aðrir hagsmunaaðilar, komið athugasemdum, ábendingum eða kvörtunum í tengslum við laun og jafnlaunakerfi á framfæri við frávikateymi kerfisins.  Fulltrúar stýrihóps eiga sæti í frávikateymi og bera þeir ábyrgð á meðhöndlun athugasemda og frávika.

Smelltu á hlekkinn og útskýrðu í stuttu máli í hverju athugasemdin felst og tilgreinið þau atriði sem talin eru vera brot á kröfum jafnlaunastaðals 85/2012 eða lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 150/2020 með tilheyrandi breytingum vegna jafnlaunavottunar. Tilkynningin getur átt við þig sem einstakling, annað starfsfólk stofnunarinnar sem þú telur brotið á, eða jafnlaunakerfið sjálft og eftirfylgni þess.