Kolfinna Pola Frantzen Grétarsdóttir kynnti 15. maí diplómaverkefnið sitt í lífeindafræði, sem unnið var á Keldum. Ritgerðin ber heitið: Evaluation of selective culture methods for Campylobacter spp. Comparison of selective media, enrichment broths, and spike levels. Á íslensku: Mat á sértækum ræktunaraðferðum fyrir Campylobacter spp. Samanburður á agar gerðum, forræktunarætum og styrkjum bakteríulausna. 

Prófari var Snædís H. Björnsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild og Brynhildur Ósk Pétursdóttir, námsbrautarstjóri í lífeindafræði stýrði athöfninni. Leiðbeinendur Kolfinnu voru  Lilja Þorsteinsdóttir á Keldum, og Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir á Keldum.

Campylobacter er algeng orsök bakteríutengdra meltingarfærasýkinga hjá mönnum og berst oft með neyslu á vanelduðu kjúklingakjöti. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort Butzler agar gæti bætt greiningu á Campylobacter úr saursýnum kjúklinga samanborið við aðrar agargerðir sem notaðar eru á Keldum. Niðurstöður sýndu að Butzler agar gaf bestan vöxt Campylobacter og takmarkaði vöxt annarra baktería úr saursýnum. Einnig kom í ljós að við beina sáningu er nauðsynlegt að þynna saursýni 1:2 til að draga úr líkum á falsk-neikvæðum niðurstöðum.

Keldur óska Kolfinnu innilega til hamingju með prófið. 

Share