Ársskýrsla Tilraunastöðvar H.Í. í meinafræði að Keldum fyrir árið 2025 er komin út. Skýrsluna má nálgast hér á PDF sniði: Ársskýrsla 2025

Í ársskýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit um fjölbreyttar og metnaðarfullar grunn- og þjónusturannsóknir á sviði dýrasjúkdóma og dýraheilbrigðis, gæðamál, tilvísunar-rannsóknastofur, lífsýnasöfn og birtingar og kynningar starfsfólks.

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er dýraheilbrigðisstofnun Íslands.

•    Stofnunin rekur rannsóknastofur á átta fagsviðum, auk fullkomnustu öryggisrannsóknastofu landsins
•    Sérfræðingar stofnunarinnar búa yfir yfirgripsmikilli fagþekkingu sem er hvergi annars staðar fyrir hendi á landinu

Myndina á kápu ársskýrslunnar tók Ólöf Guðrún Sigurðardóttir, dýralæknir og meinafræðingur á Keldum.  Myndin er af vefjasýni úr litla heila kettlings sem var smitaður af fuglainflúensuveiru (HPAI-H5N5). Á myndinni má sjá alvarlegar bólgur og drep í litla heila. Bólgan er áberandi í hnykillaufi hægri megin á myndinni.

Share