Afnæming um slímhúð munns með byggi sem tjáir ofnæmisvaka

Mynd af byggi

ORF Líftækni hefur þróað aðferð til að tjá og framleiða endurröðuð prótein í byggfræjum. Fræin eru náttúrulegt forðabúr og prótein sem tjáð eru þar eru sérstaklega stöðug með mikið geymsluþol. Hjá fyrirtækinu er notuð öflug aðferð til hreinsunar á próteinum úr bygginu (Magnusdottir et al., 2013).

Afnæming um slímhúð munns er í stöðugri þróun í fólki. Farið er að nota töflur sem innihalda viðeigandi ofnæmisvaka til að afnæma einstaklinga með gras og birkiofnæmi. Þessi aðferð þykir mun notendavænni en krefst lengri tíma og meira magns af ofnæmisvökunum (Passalacqua et al., 2019).

 

Mynd af byggméli

Átta ofnæmisvakar hafa verið tjáðir í byggi í samstarfi við ORF Líftækni. Þeir reynast jafn vel í ónæmisprófum og vakar framleiddir í E. coli og skordýrafrumum (Jonsdottir et al., 2018 og 2021). Aðferð var þróuð til að meðhöndla hross með endurröðuðu byggmjöli um slímhúð munns þar sem notuð eru sérhönnuð mél. Heilbrigðir hestar meðhöndlaðir með endurröðuðu byggi mynduðu ofnæmisvaka sérhæfð mótefni sem gátu að hluta hindrað IgE bindingu við ofnæmisvakann (Jonsdottir et al., 2017). Verið er að tjá fleiri ofnæmisvaka í byggi og reyna á að þróa notendavænni aðferð til að meðhöndla hrossin.