Sýnataka og frágangur sýna vegna riðuskimunar:
- Takið sýni úr bæði mænukylfu (obex) og litla heila (cerebellum).
Ath. Matvælastofnun hefur sent nánari leiðbeiningar um sýnatökur til héraðsdýralækna. - Látið sýnið í glasið ásamt eyrnamerkinu.
Ef ekkert eyrnamerki er þá þarf að skrifa bæjarnúmerið á lokið á glasinu. - Safnið öllum sýnaglösum frá sama bæ í plastpoka, lokið honum tryggilega, setjið síðan annan glæran plastpoka utanyfir og ofan í hann miða með upplýsingum um búið og fjölda sýna, sjá meðfylgjandi (látið letrið á miðanum snúa út).
- Frystið sýnin.
- Setjið sýnin í frauðplastkassa ásamt lista yfir þau sýni sem eru í kassanum.
- Merkið kassann með eftirfarandi hætti:
Tilraunastöð HÍ að Keldum,
v/Vesturlandsveg
112 Reykjavík
FRYSTIVARA
v/riðuskimunar