Yara Aparecida Evangelista varði 5. mars meistararitgerð sína við Læknadeild. Ritgerðin ber heitið Escherichia coli associated with watery mouth disease in neonatal lambs: Characterization of strains, phylogenetic classification and antimicrobial resistance. Á íslensku: Escherichia coli stofnar tengdir slefsýki í nýfæddum lömbum: Greining stofna, tegundarþróunarhópa og sýklalyfjaónæmis.
Prófari var Snædís H. Björnsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild og Jón Þór Bergþórsson, dósent við Læknadeild stýrði athöfninni.
Í meistaraprófsnefnd voru Charlotta Oddsdóttir og Lilja Þorsteinsdóttir á Keldum, og Jón Hjalti Eiríksson hjá LbhÍ.
Slefsýki er algeng orsök dauða hjá nýfæddum lömbum og hefur bakterían Escherichia coli (E. coli) verið tengd sjúkdómnum. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka E. coli stofna úr nýfæddum lömbum sem drepist höfðu úr slefsýki, með áherslu á meingerð sjúkdómsins, tegundarþróunarhópa og sýklalyfjaónæmi. Þrjátíu lömb af 21 búi voru krufin, sem drepist höfðu með klínísk einkenni samsvarandi slefsýki. Niðurstöðurnar sýndu að slefsýkieinkenni geta reynst verið af ýmsum ólíkum orsökum, og tengjast ekki alltaf E. coli sýkingu. Jafnframt sýndu E. coli stofnarnir fjölbreytileika hvað varðar tegundarþróunarlegan uppruna, sýklalyfjaónæmi og ónæmisgen. Að lokum er ljóst að slefsýki hefur ekki verið nægilega vel skilgreind, og aukin þekking á sjúkdómnum er mikilvæg til að leiðbeina við notkun sýklalyfja í búfjárrækt og draga úr þróun sýklalyfjaónæmis.
Keldur óska Yöru innilega til hamingju með prófið.