Keldur á Vísindavöku Rannís 2026

Komdu og heimsæktu bás Keldna á Vísindavöku í Laugardalshöll laugardaginn 26. september kl. 12:00-17:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Á básnum verða þrjú spennandi rannsóknaverkefni kynnt sérstaklega:

  • Ráðgátan um röndóttu bleikjuna
    Hvers vegna halda sumar bleikjur röndunum sínum alla ævi en aðrar ekki? Rannsakendur skoða tengsl á milli erfðaþátta, vaxtar og útlitseinkenna fiska með hjálp gervigreindar sem greinir mynstur á þúsundum mynda.
  • Höfuðlús greinist koll af kolli
    Kynntu þér líffræði höfuðlúsar, útbreiðslu hennar og smitleiðir. Höfuðlúsin (Pediculus humanus capitis) er smátt en þrálátt sníkjudýr sem fylgt hefur manninum í þúsundir ára.
  • Ósýnilegur heimur örvera
    Hversu hreinar eru hendurnar okkar í raun? Skoðað verður mikilvægi handþvottar, áhrif sápu og spritts ásamt fjölbreyttum heimi örvera á borð við Salmonella og Campylobacter.

Keldur hvetja alla til þess að koma við, fræðast um rannsóknirnar og spjalla við vísindamenn á staðnum.

Share